Vá, frumlegur titill…

Já, anyway, var að horfa á mynd um Elvis, og það var sýnt þarna eitthvað frá 1963, þegar The British Invasion byrjaði. Svo var eitthvað verið að tala um að núna ættu Bítlarnir 14 lög í topp 100 listanum (Bandaríska vinsældalistanum, man ekki hvað hann heitir). Hann [Elvis] varð svona geðveikt pirraður og eitthvað.

Var að spá; er það bara ég eða var hann mjög afbrýðisamur og óöruggur út í The Fab Four?

Bætt við 5. febrúar 2007 - 21:39
Já, má einning geta þess að hann ökklabraut Priscillu þegar hún hæddist að honum fyrir að vera “að tapa fyrir enskri sveit”.