Já, ég er svo glaður, að mig langaði að gera kork um þetta sem kom fyrir mig í gær!!

ég var að horfa á sjónvarpið með pabba og síðan sagði hann bara uppúr þurru að það væru 2 fullir kassar af vinyl plötum útí bílskúr,
og ég sem var búinn að vera alveg rosalega fúll útí hann fyrir að gefa eitthvað af þessum plötum síðustu 2 árin.

Allavega, ég fer útí bílskúr, og eyði bara veit ekki hvað löngum tíma í að leita að plötum, og síðan finn ég Lynyrd Skynyrd, Nuthin' Fancy! og ég fæ hjartaáfall, því ég var eiginlega mest svekktur yfir að hann hafi “gefið” þessa plötu.

Og svo fann ég 2 santana, 2 steppenwolf, alveg fullt fullt af Elton John.. hann er ágætur kallinn, genesis, phil collins, eagles, og svo man ég ekki alveg.

En það var búið að taka Rolling Stones, Uriah Heep og Deep Purple plöturnar =/