Komiði blessuð og sæl mínir elsku Hugarar.

Núna á morgun, þann 2. des, fer ég á John Lennon ‘tribute’ tónleikana (en þeir 1. voru í kvöld) Give Peace a Chance. Þar eru nokkrir hljómlistamenn ásamt Sinfó að spila velkunn Lennon lög og einhver Bítla lög. Ég held að þetta muni vera mjög gaman.

Líka þar sem var verið að gefa út LOVE diskinn
www.cirquedusoleil.com/Love

og myndina John Lennon vs. The U.S. í Bandaríkjunum, sem ég get ekki beðið eftir að sjá.

Ég eindregið með því að þið kaupið síðustu örfáu miðana sem eru eftir!
www.lennon.is

Það sem ég var annars að pæla var hvort einhverjir hér hafi farið í kvöld, eða hyggja fara á morgun eða á sunnudag. Endilega segið ykkar skoðun á þessu öllu ;)