Ég heyrði eitthvað geggjað lag með þeim um daginn, keypti mér disk af handahófi með þeim og varð heldur fyrir miklum vonbrigðum, líklega ekki nógu gamall fyrir minn smekk(t.d. komið þetta leiðinlega sound í snerilinn sem eyðilagði flest rokk á því tímabili). Því spyr ég eins og maður sem vill fá svar við þessari spurningu: Mælið þið með einhverjum sérstökum plötum með þeim?

Var að panta mér In the Court of the Crimson King samkvæmt læknisráði og ákvað að taka með Larks Tongues in Aspic og In the Wake of Poseidon.