Lennon-McCartney Mikið hefur verið ritað um John Lennon & Paul McCartney í gegnum tíðina. Eftir að hljómstveitin The Beatles hætti árið 1970, þá hefur ætíð verið sagt að þeir tveir hefðu ekki sagt orð við hvorn annan, og reyndar hélt ég það lengi sjálfur þar sem ég hef mikinn áhuga bæði á Lennon og McCartney og bítlunum. Eftir að bítlarnir hættu þá stofnaði McCartney, hljómsveitina Wings, á meðan að Lennon fór ásamt Yoko Ono, og spilaði með henni og fleirum.
Reyndar finnst mér persónulega Paul McCartney alltaf hafa verið frekar leiðinlegur persónuleiki miðað við John Lennon, kannski hef ég rangt fyrir mér en ég er bara að segja frá mínu sjónarmiði. Auðvitað er nokkuð erfitt að setja sóló feril þeirra tveggja saman og segja hver er betri. Lennon gerði alltaf persónulegri lög heldur en McCartney, Paul söng oft um ástina á meðan Lennon söng um örlögin.
Margar sögur hafa verið sagðar af þeim eftir að bítlarnir hætti og þrátt fyrir að sumir segja að þeir tveir hefðu verið óvinir þá er það örugglega rangt. Megi minning þeirra lifa.