Nú er komið í ljós hverjir spila með Roger Waters á túrnum sem meðal annars mun eiga viðkomu hér á klakanum.

Uppstillingin verður þessi:
Andy Fairweather Low – Gítar
Snowy White – Gítar
Dave Kilminster – gítar og söngur Jon Carin – Hljómborð
Harry Waters – Hammond Orgel
Graham Broad - Trommur
Katie Kissoon, PP Arnold and Carol Kenyon – Bakraddir

Ekkert sem kemur neitt svakalega á óvart, gaman að sjá að Snowy White verður með honum en hann var tíður gestur hjá Pink Floyd (á tónleikum) og síðan með Roger á sóloferlunum. Jon Carin er líka búinn að spila lengi með öðrum hvorum (Gilmour eða Waters) og spilaði meðal annars á Live8 með þeim kumpánum.

Efast samt um að nokkur kannist við þessi nöfn, ekki gerði ég það fyrir utan þessi tvö sem ég nefndi hér áðan.

Síðan er bara að bíða spenntur.