Ég fór að sjá Walk The Line í bíó í dag (snilldar mynd btw) og ég komst ekki hjá því að taka eftir því hvað hún og Ray eru líkar (þeas ævi Johnny Cash og Ray Charles). T.d. lentu þeir báðir í því að missa bróðir sinn á unga aldri, voru báðir háðir eiturlyfjum (en náðu sér sem betur fer á strik síðar), áttu konu og börn en áttu þó í ástarsambandi við aðrar konur.