Ég hef oft séð fólk tala um besta lagið eða bestu hljómsveitina á þessu áhugamáli. Þessar umræður enda oft í rifrildi um að hinn eða þessi sé ofmetinn eða eitthvað álíka. Ég vildi bara koma minni skoðun að.

Það er ekkert sem heitir best eða verst í tónlist. Ég fíla ekki hip-hop en ég segi samt ekki að það sé versta tónlistin. Það er hægt að segja að tónlistamenn séu hæfileikaríkir og góðir en ekki að þeir séu betri en aðrir. Það fer allt eftir því hvernig maður lítur á hlutina.

Notum uppáhalds í staðin fyrir best!