Hver eða hverjir finnst ykkur vera með flottasta sviðsframkomu. Ég hef oft heyrt að Freddie Mercury hafi verið bestur en hvað finnst ykkur?

Mér finnst Freddie Mercury geðveikt flottur live og flest sem hann gerir á sviði verður flott. Hann er alltaf að gera eitthvað fáránlegt og gera sig að fífli en einhvernveginn verður það alltaf flott. Hann nær líka ótrúlega vel til áhorfenda.

Um daginn sá ég tónleika með Robbie Williams. Ég fíla ekki alveg tónlistina hans en sviðsframkoman hans er ótrúlega flott. Hann kann mjög vel á áhorfendurna eins og Freddie og hefur flottar hreyfingar og takta.

Þeir tveir finnst mér standa upp úr en Freddie finnst mér samt bestur. Hvað finnst ykkur?