Ég verð að segja að mér fannst alltaf gaman að lesa plötudómana á síðunni, en þeir eru hættir að renna inn eins og þeir gerðu. Það er ekkert skemmtilegra en að uppgvöta einhvern gullaldardisk sem maður hefur ekki heyrt áður eða maður hafi bara heyrt hann fyrir löngu. Ég hvet stjórnanda(eða hvern sem er sem setur þetta inn) til þess að bæta endilega við fleiri dómum. Mér persónulega finnst mjög gaman að lesa þá, og kannski gefur fólki tækifæri á því að fá rökstuddar skoðanir fólks á merkilegum gullaldarplötum, sem gerir það að verkum að það kaupir þær kannski.