Já… loksins kemur Joe Cocker á klakann og syngur sína fögru tóna.

Það er mikil eftirvænting, því hann er einn af þeim sem maður hefur mest langað til að sjá á tónleikum.

Það er Concert sem flytur þá inn, og hérna er staðfestingin :

Concert kynnir með stolti
STÓRSÖNGVARINN JOE COCKER TIL LANDSINS
GULLMOLATÓNLEIKAR Í LAUGARDALSHÖLL 1. SEPTEMBER
Miðasala hefst miðjan apríl -

Samningar hafa náðst við breska stórsöngvaran Joe Cocker um tónleikahald
í lok sumars á Íslandi. Cocker hefur verið einn vinsælasti söngvari heims allt
frá því að hann sló í gegn á Woodstock árið 1969. Tónleikarnir verða haldnir í
Laugardalshöll þann 1. september nk. og mun miðasala hefjast um miðjan apríl.
Það er Concert mikill heiður að fá að bjóða Íslendingum uppá þennan einstaka
tónlistarviðburð……