Af hverju þarf fólk alltaf að segja t.d. að nú fái það að heyra lagið Piece of my heart með Janis Joplin en ekki Big Brother? Þetta fer svo endalaust í taugarnar á mér, ég veit að þetta á ekki að gera það en það gerir það samt. Segið að það hafi verið Big Brother sem hafi samið það EKKI Janis Joplin. (Hef grun um að hún hafi ekki samið það heldur hljómsveitin, annars væri í lagi að segja að hún hefi samið það en ekki hljómsveitin.)