Það er að sjálfsögðu frábært að fá loksins að sjá Deep Purple á sviði. En ég verð samt að viðurkenna það að það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég heyrði um Deep Purple tónleika þar sem Uriah Heep myndi hita upp var að ég fengi að heyra July Morning og Child in time..Sama kvöldið!
En nú lítur út fyrir að ég fái að heyra hvorugt, þar sem Gillan má ekki syngja Child in time ef hann vill halda röddini, og ekkert meira hefur heyrst um að Uriah Heep hiti upp.