
Dúndurfréttir....Pink floyd
Ég var að koma af tónleikum hljómsveitarinnar “Dúndurfréttir” en eins og margir vita af voru þeir með tónleika þar sem þeir fluttu snilldarverkið Dark Side Of The Moon. Þessir tónleikar voru í alla staði frábærir. Fyrir hlé fluttu þeir lög af öðrum plötum. Eftir hlé fluttu þeir DSOTM í heldsinni og var það geðveikt. Þeir fengu bakraddasöngkonur m.a. Andreu Gylfa. Og saxafónleikara sem var sjúkur. Þetta eru alveg gífurlega góðir hljóðfæraleikarar allt saman. Þeir voru klappaðir upp tvisvar. Ég mæli með því ef þetta verður á næsta ári aftur að alli fari!