Gullaldartrivian - Úrslit Já þáttaka var frekar léleg þetta skiptið og ég ætti að taka einhverja sök á mig þar sem ég var frekar heppin að vinna síðustu og veit mikið meira um minni hljómsveitirnar heldur en þær stærri. En áður en ég kem út úr mér hver hnuplaði fyrsta sætið þá ætla ég að fara yfir spurningarnar fyrir sig og svörin.

Fyrir hvaða hljómsveit spilar Martin Barre, hvenær er hann fæddur, í hvaða bæ fæddist hann og hvenær? (4 stig) Martin “Lancelot” Barre er gítarleikari í Jethro Tull og hefur verið síðan platan this was var gefin út árið 1969. Hann fæddist í Birmingham eins og ég held Ian Anderson 17 november 1946. Ég hefði gefið rétt ef aðeins ár hefði verið gefið upp.

Hver var fyrsti söngvari Uriah-Heep, hvenær hætti hann, hver tók við honum og hver syngur núna? (4 stig) Þessi var svoldið tricky og nokkrir klixuðu á þessari. Málið er að David Byron var frá 69-76 og John Lawton tók við honum en ekki John Sloman en hann kom 3 árum seinna eða svo. Bernie Shaw syngur núna fyrir hljómsveitina og hefur gert í nokkur ár.

Hvað var Jeffrey Hammond kallaður þegar hann spilaði með Tull? (1 stig) Jeffrey Hammond var alltaf kallaður Jeffrey Hammond-Hammond

Nefndu 4 af 5 spilurum í the Cars (2 stig) Ric Ocasek, Benjamin Orr, Elliot Easton, Greg Hawkes, David Robinson Nóg að nefna 4 af 5 þarna:D

Hvað hétu fyrstu 3 plöturnar með Nazareth? (3 stig) Það geta verið 2 réttir möguleikar. Það sem ég tel vera réttast er að fyrsta platan sé Nazareth, svo Exercises og svo Razamanas. En það er einnig rétt að þeir gerðu einhverja asnalega live plötu þarna á milli, eitthvað bbc rusl. En það er einnig rétt að minnast á hana.

Hver spilaði á gítar óvænt með Jethro Tull árið 1969 og frá hvaða frægu hljómsveit kom hann frá? (2 stig) Toni Iommi kom í smá stund til Tulls frá Black Sabbath

Nefnið 4 plötur með Alice Cooper frá árunum 1969-1975 (4 stig) þarna má nefna margar plötur… Pritties for you 69', easy action 70', love it to the death 71', Killer 71', School's out 72', Billion dollar babies 73', Muscles of love 73', greatest hits rusl 74´ og svo Welcome to my nightmare 75'.

Hvað heitir nýja platan með Rolling Stones? (1 stig) Bigger bang

Við hvað starfaði Meat Loaf áður hann snéri sér að tónlistinni? (1 stig) Hann var leikari í leikhúsi en nóg var að segja leikari:D

Hvað heitir Cat Stevens í dag? (1 stig) Yusuf Islam

Já þáttaka var léleg og kom mér á óvart að enginn vissi neitt almennilegt um cooper eða nazareth.

En burt frá því séð þá tóku 5 hugarar þátt og keppnin var spennandi og jöfn.

Rasta 7 stig
yoko90 5 stig
huy 3 stig
bahemoth 3 stig
aegishjalmur 2 stig


Svo til hamingju Rasta. Þú átt þá að gera næstu Triviu. Vonandi verður meiri þáttaka í henni hehe.