Hérna kemur smá Queen trivia sem ég og systir mín gerðum (eða aðallega hún, svo bætti ég aðeins við). Þið megið alveg svara og þá senda í PM, ekki hérna. Þetta er bara upp á gamanið og engin verðlaun nema bara heiðurinn að vita mikið um Queen. Annars er ekkert gaman að svara. Eins og í öllum svona spurningakeppnum er bannað að leita á netinu. Ég sendi svo svörin inn seinna. Gjörið svo vel :)


1. Hvað heitir Freddie Mercury réttu nafni?

2. Umboðsmaður hvaða fræga söngvara tók Queen að sér þegar þeir áttu í deilum við Trident árið 1975?

3. Hvað heitir einkasystir Freddie Mercury?

4. Hver samdi Queen sinfóníuna?

5. Hver erfði Garden Lodge eftir dauða Freddies?

6. Hvað kallaði Freddie Mercury sig þegar hann tók upp lögin Going Back og I Can Hear Music?

7. Af hvaða sóló-plötu Roger Taylor er lagið Dear Mr. Murdock?

8. Hvaða hollenska Queen-cover-hljómsveit hefur komið tvívegis til Íslands?

9. Hvað hét söngvari Smile sem Brian May og Roger Taylor voru í áður en Queen var stofnuð?

10. Hvað eru margar villur í fæðingarvottorði Freddies?

11. Nefnið tvo af köttum Freddie Mercury?

12. Hver leikur Freddie Mercury í myndbandinu við The Miracle?

13. Hvaða lag var samið um Martin Luther King?

14. Hvaða Queen lag var samið í baði?

15. Hvaða nótu syngur Roger Taylor í Bohemian Rhapsody þegar hann syngur hæst (to me)?

16. Hvað heitir elsti sonur Brian May?

17. Hvað heitir ný tónleikaplata Queen+Paul Rodgers sem kom út í vetur?

18. Til hvaða tímarits sendi Roger Taylor bréf skrifað á ælupoka úr flugvél?

19. Hvaða mentun hefur John Deacon?

20. Tveir meðlimir Queen eru í sama stjörnumerki. Hverjir eru það og hvaða stjörnumerki er þetta?

21. Árið 1974 gáfu Queen út tvær breiskífur. Hvað heita þær?

22. Hvaða ár var skipt í fyrsta (og eina) skipti um bönd í Red Special, gítarnum hans Brian May?

23. Á hvaða japanska strengjahljóðfæri spilar Brian May í laginu The Prophet’s Song á plötunni A Night At The Opera?

24. Hvert er millinafn John Deacon?

25. Á hvaða plötu var Guði þakkað fyrir þrumur sem heyra má á henni?

26. Um hvern samdi Brian lagið Sail Away Sweet Sister?

27. Hvert var síðasta lag sem Freddie Mercury hljóðritaði?

28. Queen hafa samið tónlist við tvær bíómyndir. Hvaða myndir eru það?

29. Freddie Mercury sagði einu sinni að hann ætti aðeins einn vin. Hver var það?

30. Roger Taylor og Freddie Mercury ráku búð á upphafsárum Queen. Hvernig búð var þetta?

31. Hvaða lag var samið til John Lennon?

32. Hvaða píanóleikari hefur gefið út plötu sem inniheldur m.a. 5 Queen eða Freddie Mercury lög?

33. Hvaða merkilegu orðu fékk Brian May nýlega?

34. Hver er yngsti meðlimur Queen?

35. Margar frægar hljómsveitir hafa hitað upp fyrir Queen, svo sem Iron Maiden, Status Quo og Thin Lizzy. En fyrir hvaða frægu hljómsveit hituðu Queen upp fyrir og minntust síðar á í lagi sínu?

36. Brian May samdi eitt sinn tónlist við frönsku bíómyndina Furia. Á disknum syngur dóttir Brians eitt lagið. Hvað heitir hún?

37. Roger Taylor á snekkju sem hann skýrði eftir næst-yngstu dóttur sinni. Hvað heitir dóttirin og hvaða ár er hún fædd?

38. Með hvaða fræga armenska tónlistarmanni spilaði Brian May á 46664 tónleikum í Tromsø í Noregi síðastliðið sumar?

39. Hvar fæddist Freddie Mercury?

40. Í hvaða sóló-lagi Roger Taylor þurfti að breyta textanum svo að hann fegni að setja það á breiðskífu?

41. Hvaða meðlimur Queen gaf út fyrstu sóló-plötuna og hvað hét hún?

42. Með hvaða konu á Roger Taylor eldri börnin sín?