Jimi Hendrix
Gítarleikari af guðs náð!

Seattle í Bandaríkjunum hefr alið af sér marga góða rokkara eins og Nirvana, Pearl Jam og Pixies sem voru meðal bestu hljómsveita á 20 áratugnum. Frægðarljómi þeirra fölnar þó í samanburði við einn frægasta Seattlerokkara allra tíma- Jimi Hendrix

Jimi Hendrix fæddist í Seattle 27. Nóvember 1942. Hann var af fátæku verkafólki kominn og átti stormasama barnæsku. Hann gekk í herinn og var sendur til Víetnam í upphafisjöunda áratugarins. Þar kynntist hann þeim anda uppreisnar og frjálsræðis sem sveif yfir vötnum á þeim tíma.
Hendrix hætti í hernum og sneri sér alfarið að gítarleik. Árið 1966 stofnaði hann hljómsveitina The Jimi Hendrix Experience. Jimi skóp sér fljótlega eiginn stíl. Hann var óheflaður í framkomu, villtur á sviðinni og braut gítara eða kveikti í þeim eftir því sem honum þóknaðist, lifði bæði hátt og hratt. Jimi Hendrix fór eins og hvirfilbylur um rokkheiminn á seinni hluta sjöunda áratugarins með villtum gítaleik sínum. Hann var goðsögn í lifanda lífi og list hans lifir enn. Mikil færni hans vekur sérstaka athygli því hann var örvhentur en spilaði alltaf á hljóðfæri fyrir rétthenta. Jimi lék oftast á Fender Stratocaster og hélt á honum öfugum. Stilliskrúfurnar snéru því niður og styrkleikatakkarnir og sveigstöngin lentu ofan til á búknum (Þeir sem spila á gítar ættu að vita þetta).

Jimi Hendrix var gítarleikari af guðs náð og ruddi á því sviði mörgum nýjungum á braut. Óhætt hefði verið að segja að ef hans hefði ekki notið við væri rokktónlist okkar daga ekki svipur á sjón. Gítarhetjan Jimi Hendrix féll í valinn aðeins 28 ára gamall, 18 september 1970, og var hann ákaft syrgður. Dánarorsök hans var ofneysla vímuefna.

Þannig að við hvetjum aðra að ekki nota fíkniefni eða önnur vímuefni.!!!!!
“Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir”