Ég held að fólk sé aðeins að misskilja þessi non-spoiler stefnu okkar… Málið er það að það eru ekki nærrum því allir sem hafa séð nýjustu seríuna, í raun bara mjög fáir. Þess vegna er frekar ósanngjarnt gagnvart öllum hinum að pósta spoilerum. En sú stefna hefur lengi viðgengist að leyfa spoilera ef varað er við þeim í titlum greina, þ.e.a.s. þannig að þeim sé ekki bara dembt á menn sisona!

Ég hef heldur engan áhuga á að lesa þessa spoilera þannig að fólk er vinsamlegast beðið um að senda spoilera beint á Slúðurkorkinn, <b>VEL</b> merkta með viðvörunum.

Kveðja, JohnnyB.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _