Jennifer Aniston þráir ekkert heitara þessa dagana en að fara í klippingu. En vandinn er að hún má það ekki. Framleiðendur Vina hafa nefnilega hótað Aniston að ef hún lætur breyta sinni margfrægu “Rachel-klippingu” þá verði hún rekin úr þáttunum. Hárgreiðsla Rachel í þáttunum hefur allt frá upphafi þeirra verið mikið umtalsefni og haft ótrúleg áhrif á strauma í hártísku kvenna. Því eru framleiðendurnir logandi hræddir við að Aniston láti klippa hár sitt án samráðs við sig og stílista þáttanna. Eitt er víst að þeir eru ekki til umræðu um að Rachel birtist allt í einu með stutt hár en Aniston er orðin hundleið á makkanum og dauðlangar að vera með stutt hár til tilbreytingar.
Ljóst þykir að Aniston mun hlýða yfirmönnum sínum enda eru litlir 750 þúsund dalir, tæplega 7,5 milljónir króna, sem hún fær greidda fyrir hvern þátt, í húfi. Ætli hún verði því ekki að bíða með útlitsbreytinguna þar til tökum lýkur í ágúst.

tekið af mbl.is

Mér finnst hún reyndar mikið flottari með stutt hár!

<br><br>Tabalugi, hinn mikli!