Hæhæ :).
Ég var að skoða “Myndbönd mánaðarins”, þar sem að listinn sýndi að fyrstu 12 þættirnir af 8 seríu í Friends, komi út 27. mars, sem þýðir að nýjasta spólan af þeim verður með þrem þáttum sem verða ekki komnir á Stöð 2!!
Mér finnst þetta afskaplega óvenjulegt; mig minnir til dæmis að í fyrra hafi spólurnar verið langt, LANGT á eftir sjónvarpinu… skrítið, en fínt :).
Þá þarf mar samt að ákveða hvort maður vill þurfa að bíða í næstum mánuð eftir að fá að sjá nýjan þátt í sjónvarpinu, og sjá þá bara á spólu; eða að vera þolinmóður og leyfa sjónvarpinu að sýna manni þetta hægt og rólega, og svo fái maður nýjan þátt strax eftir viku :P.
Sjálfur veit ég ekki alveg hvað ég ætla að gera :P!
—————————–