Já já já. Auðvitað. búið er að ákveða að gera eina seríu í viðbót og segja þeir að það eigi að vera sú síðasta. Samkvæmt DV þá fær víst hver og einn af aðalleikurunum 1 milljón dollara fyrir hvern þátt og fá þau því tæplega 2,5 milljarða fyrir þessa 24 þætti. Ekki slæmt kaup það. Plús það að þau fá einhver 2% af öllu sem kemur inn vegna söluvara. Þetta eru bestu fréttir sem maður hefur fengið í langan tíma enda hefur maður legið í þunglyndi alla tíð síðan tilkynnt var um að 8. serían ætti að vera sú síðasta. Það verður örugglega mjög gaman að fylgjast með því hvernig þeir ætla að tvinna barnið Rachel og Ross inn í þættina og það verður örugglega nokkuð furðulegt að það verði barn sem verður mikið í þáttunum alla næstu seríu

Með kveðju Pele