Hver er uppáhalds og leiðinlegustu karakterarnir þínir í Friends og af hverju.
Uppáhalds persónan mín er Chandler, dáði hann í fyrstu seríunum, David “the science guy”, alltaf skemmtilegt að sjá Hank Azaria.
Leiðinlegustu persónurnar mínar eru Rachel og Ross. Rachel er alltaf grenjandi yfir öllu og finnst hún ekki það fyndin. Ross getur átt sín moment en ég þoli ekki þegar hann verður taugaóstyrkur, sem hefur komið nokkrum sinnum fyrir, versta dæmið var áreiðanlega þegar hann hitti Mr. Stevens(pabbi Elizabeth, neminn sem Ross var með í 6. seríunni)sem var leikin af Bruce Willis.