Nýjustu fréttir frá Hollywood herma að það sé afar líklegt að það verði framleidd 9. þáttaröð. Það eru víst næstum allir leikararnir búnir að samþykkja að leika í annarri þáttaröð, það er aðeins einn leikari sem er erfitt að sannfæra… (veit ekki hver það er). Fyrstu þættir úr 8. seríu hafa fengið góðar viðtökur og margir hafa orð á því að þetta sé ein besta þáttaröðin. Á meðan Friends þættirnir eru ennþá að fá mikið áhorf er skiljanlegt að framleiðendurnir vilji halda áfram að græða :) Þannig að útlitið er bjart fyrir aðdáendur :)