Ég veit að þetta er pínu seint, en ég var að horfa á lokaþáttinn af Friends á Sirkus um daginn, aftur, og tók eftir einu eftir þáttinn…
Hvar var Emma í öllum þættinum? Ég hélt kannski að hún ætti að flytja með Rachel til Parísar, en hún fór ekki í flugið með henni, og ekki gat hún verið hjá Ross, hann var ekki með hana.

Eru 3 ungabörn of mikið fyrir einn þátt? Þetta er bara saklaus pæling, langar að vita af hverju ein aukapersónan var bara klippt út úr lokaþættinum…