Ég er búinn að vera að leita að þessum þáttum og var að spá í hvort það sé einhver sem á þessa þætti upptekna eða viti um einhvern sem á þá upptekna? Þetta eru þættirnir með honum Erpi Eyvindarsyni sem voru á skjá einum, þættirnir voru í svona Ali G stíl…
Endilega ef einhver á eitthvað af þessum þáttum eða veit hvar ég get nálgast þættina þá látið mig vita. Ég veit að ég get fengið þessa þætti hjá skjá einum en þar kostar hver klukkutími 5000kr svo það væri betra ef ég gæti fengið eitthvað af þáttunum aðeins ódýrara… :)