Ókei. Syrpan endaði á óléttuprófi og maður fór að heyra slúður um að Aniston væri ólétt. -Svo var einhver undarlegur bíltúr með henni og Ross undir lokin, svo maður fór að vona að nú væri eitthvað að draga til tíðinda hjá þeim loksins.

Síðan kemur annað slúður um að það sé bull að Aniston sé ólétt. -Mikil vonbrigði, en jæja.
En núna í nýjasta Séð og Heyrt er frétt um það að Cox hafi verið að missa fóstur. -Var það hún sem átti að eiga óléttuprófið?

Ég veit að maður á ekki að vera að hlusta á Slúðurblöðin, en ég er orðin forvitin!!! -Hvað er málið með þetta óléttupróf????