Ég veit ekki hvort þetta er komið inn á huga, fann það allavega ekki.

Mistökin eru sú að í einum þættinum sagði Pheebs að hún hefði grátið yfir Bambi í þrjá daga (en að hluta til vegna mömmu sinnar því hún framdi sjálfsmorð á 3. deginum). Samt í öðrum þætti (Richard var með Monicu í þeim þætti, TOW Old Yeller Dies???) horfir hún á bunch af myndum sem enda illa vegna þess að hún hélt alltaf að þær enduðu vel því mamma hennar slökkti alltaf á sjónvarpinu og sagði “The end”´áður en hún gat séð hvernig myndin endaði í raun.

Síðan þá gerði Ross lista yfir Rachel og Julie (vega og meta þær), seinna í þeim þætti gerði hann lista yfir góða hluti við Rachel, þar sagði hann: “How great you are with Ben”. Nokkrum þáttum seinna þegar þau voru búin að vera saman í smá stund þá var heill þáttur(ja,nánast) um það hvernig hún á “erfitt” með að vera með Ben (hélt á honum eins og fótbolta..), þátturinn endaði samt vel.

Er þetta e-ð svo fáránlegt hjá mér, hefur e-r annar tekið eftir þessu ?
gons