Var að enda við að horfa á þátt með Silvíu Nótt.
Ég verð að segja að þessi stelpa er algjör snilld.
Þó það væri ekki nema fyrir hvað hún kemur miklu lífi í einn eldri heimilismann hér, sem varð alveg æfur þegar hún snéri út úr sögunni um Frakkland og stríðið.
Kallaði hana heilalausa gálu og fleira.
Mestu viðbrögð þessa manns í ein tuttugu ár.
Takk Silvía.