Þessi “Trivia” hér á áhugamálinu Friends er að mínu mati algjört rugl. Ég er mjög mikill Friends aðdáandi : á 1-9 seríu á spólu og get jafnvel talað inná suma þættina. Ég gæti svarað flestum staðreyndaspurningum sem lagðar væru fyrir mig, en af hverju í andskotanum ætti ég að vita í HVAÐA þætti ákveðinn aðili er að gera ákveðinn hlut?
Mér finnst þetta fyrir neðan allar hellur. Af hverju ekki að spurja t.d. “Hver gaf Monicu Porce-inn hennar?” eða “Hvað hét skrítni sambýlingur Joey's, sá sem horfði á hann sofa?” eða eitthvað í þeim dúr.
Það eru sjálfsagt einhverjir sammála mér, og endilega svararið öll - hvort sem þið eruð sammála eður ei.
Hrannar Már