Jæja friends-hugarar, ég vil bara byrja á því að óska ykkur gleðilegra jóla :)
En hérna fyrir neðan getur þú komist af því hvað mikill friends-aðdáandi/nördi þú ert ;)

-Ef þú syngur alltaf eða oftast með laginu.

-Ef þú klappar með, þú veist, svona fjórum sinnum. ;)

-Ef þú ert farin/n að segja brandarana hans Chandlers með honum.

-Þegar þú setur friends í tækið þegar þú ert að fara að sofa, bara svona til að heyra í þeim raddirnar.

-Þegar þú ert farin/n að syngja lögin hennar Phoebear

-Ef að gæludýrið þitt heitir Chandler, Joey, Monica, Rachel, Ross Phoebe eða Gunther

-Ef að þú hefur reynt að bæta boltametið eins og í TOW the Ball

-Ef þú hefur prófað drykkjuleikinn oftar en tvisvar ;)(Það er grein hérna einhverstaðar um hann)

-Ef þú getur sagt mér hvað gerðist í þætti 15 seríu 4 ;)

Jæja, þetta var nú meira upp á gamanið gert en ég vona að þið hafið gaman að þessu :)

Og já, samkvæmt þessu er ég FRIENDS-NÖRD :)