Courteney Cox er komin þrjá mánuði á leið! Er það ekki frábært.
Ætli við vitum ekki núna hvað gerist í 10 seríu? Hún og David maðurinn hennar hafa víst verið að reyna að eignast barn lengi. Ég heyrði að hún hefði misst fóstur þrisvar á árinu!

Það væri æði ef Monica og Chandler eignuðust barn í 10 seríu. Og finnst ykkur ekki leiðinlegt að Rachel og Joey hætta saman :(. Mér finnst að það ætti að ganga upp. Kannski gengur það loksins upp hjá Rachel og Ross? Hver veit.
Við verðum bara að bíða og sjá
:o)