Ég hef svona verið að pæla, Joey sem hefur alltaf verið frekar svona heimskur karakter, eða a.m.k ekki mjög klár…mér finnst eins og persónan hans sé að verða svona aðeins, já klárari.

Í fyrstu seríunum gat hann ekki tekið þátt í umræðum um til dæmis einhvern þátt sem hafði verið í sjónvarpinu(hérna er ég þó aðallega að tala um þáttinn sem að Joye kaupir alfræðiorðabók af einhverjum manni, en hefur bara efni á einni bók svo að hann kann öll orð, orðskýringar og atburði…en bara það sem byrjaði á V(minnir mig).

Að minnsta kosti þegar hann og Chandler bjuggu saman, þá var hann rosa tregur stundum…

Og hann hefur alltaf verið svona skemmtilegur karakter út á heimskuna…

Hvað finnst ykkur…er Joey að þroskast???