Ég var bara að pæla að í þætti 908 þegar systir Rachel kemur í heimsókn á þakkargjörðarhátiðinni þá eru þau eitthvað að tala um að systir Rachel (Amy) fái ekki barnið hennar Rachel (Emmu) ef Ross og Rachel deyji. Allaveganna þegar Rachel er eitthvað að tala og segir “If something were to happend to Ross or myself” þá banka Ross og Rachel eitthvað í borðið!! Ég er bara að pæla hvað í ósköpunum það er. Chandler gerir þetta líka seinna í þættinum. Veit einhver hvað þetta þýðir???