Hingað til hefur enginn vinur sofið hjá fleiri en einum vini í hópnum. En það gæti komið í ljós í næstu seríu að þau hafi bara kysst hvort annað en mér finnst það frekar ólíklegt.

Af hverju er Rachel farin að fíla Joey svona í botn, hann er ekki svona gaur sem á í samböndum, hann er með mörgum konum en aldrei of lengi í einu.

Þessir þættir eru farnir að minna mig á Beverly Hills að þessu leiti að allir sofa hjá öllum, Beverly Hills er það allra leiðinlegasta og þunna sjónvarpsefni sem ég hef augum litið.

Ég vona að þeir finni einhverja snjalla lausn á þessu í næstu seríu annars held ég að Friends eigi að tapa einhverjum vinsældum.

Svo eru það fleiri dæmi sem ég get nefnt þar sem Joey og Chandler voru með sömu kærustunni sem ég man ekki hvað hét, og nú er Ross byrjaður með Charlie sem Joey var með.

Hvað finnst ykkur um þetta að Rachel sé svona hrifin af Joey og að þau hafi sofið saman í lok 9. seríu?