Eftir að hafa séð flesta Friends þætti þá hef ég smám saman eignað mér uppáhalds aðalpersónu í Friends. það sem vekur hins vegar forvitni mína er afhverju. Svo ég spyr hver er ykkar uppáhalds aðalpersóna og afhverju?

Ef ég byrja þá er mitt val Joey. þó að við séum að mestu leiti ólíkir þá eigum við eitt og eitt sameiginlegt og hans einfalda viðhorf til lífsins fær mig stundum til að skellihlægja auk þess sem að ég hef mesta samúð með honum þegar hann lendir í vandræðum.

Af kvennpersónunum þá höfðar Rachel mest til mín en það var þó ekki fyrr en í seríu 3 og 4 og þar eftir.