ég hef verið að pæla t.d í 7.seríunni man ekki hvaða þætti þá gengur Joey til Phoebe og er að klæða sig í jakkan og segir nú skulda ég þér 4,50 og þá er myndavélinni beint að Phoebe en svo sér maður joey í bakgrunninn og þá heldur hann á jakkanum en áður hafði hann verið að fara í jakkann.

Og svo í öðrum þætti þá er myndavélinni beint að rachel og þá er hárið á henni slegið og svo er myndavélinni beint að joey og svo strax aftur rachel og þá er hún með allt öðruvísi hárgreiðslu. Ég hef líka verið að pæla í þessu með tímann. Þau fljúga eitthvert og eru geðveikt fljót…eins og þegar Ross flaug til Englands til að hitta Emily svo hún myndi ekki hitta þennan Colin gaur aftur og sat þarna á tröppunum og hann var enga stund að fljúga þangað..þetta gengur bara ekki upp. Svo var hann að fara í fyrsta skipti þangað þá til Emily og hvernig vissi hann nákvæmlega hvar hún átti heima?

Svo veit ég um fullt af klúðri í Friends sem ég nenni ekki að skrifa :) Segið mér hvað ykkur finnst um þetta….. :)