Jæja, þá er komið að Friends Trivu 2. Seinustu spurningar voru aðeins of léttar svo að núna er þetta orðið aðeins meira challenge. Það geta komið upp villur í spurningunum (eins og sást seinast) enda sem ég spurningarnar sjálfur og vona ég að þið takið því bara með jafnaðargeði.


Ath. Ekki senda inn svörin sem greinarsvar heldur sendið mér póst!!!!!

Hér koma þær:

1. Hver lét minnka á sér eitt brjóstið?

2. Vinirnir störðu lengi á ´ugly naked guy´ en hver eyddi frítíma sínum í að stara á þau?

3. Hver eiga eftirfarandi gælunöfn: Ray Ray, Wetpants, Sir-Limps-a-lot, The three losers, Big fat goalie, lycra/spandex covered gym… treat, Spackel boy?

4. Hvað hét systrafélagið sem Rachel gekk í, í háskóla?

5. Hvað minnti Ross á Julie, eftir að hafa kysst Rachel í fyrsta sinn?

6. Úr hvaða búð kom ostakakan sem var svo ómótstæðileg í augum Chandlers og Rachel?

7. Hvaða pör hafa stundað kynlíf á eftirfarandi stöðum: Disney World, Central Park, Central Perk?

8. Hver var upprunalegi höfundur lagsins á bakvið Sóðakött og í hvaða auglýsingu var lagið notað?

9. Hve oft hafa Rachel og Ross ´gert það´?

10. Hvað heita börn Frank Jr.?

Ath. Ekki sendi inn svörin inn sem greinarsvar heldur sendið póst!!!!!