MattLeBlanc, eða Joey Tribbiani (eins og flestir þekkja hann) er í samningarviðræðum við framleiðendur þáttanna Friends. Nýbúið er að koma fram að allir “krakkarnir” í þáttunum eru búnir að fallast á að koma fram í 10 seríunni, en fá þó slatta mikið af monníngum beint í vasann. Þó er sagt að þetta verði síðasta þáttaröðin með Vinunum okkar, og ég er ekki viss um að margir séu ánægðir með það. En nú geta margir tekið gleði sína á ný, því að LeBlanc er að hugleiða það að leika í sérþáttum, bara með persónunni Joey Tribbiani. Það væri nú bara algjör…

“SCHNILLD”…

… er það ekki??? Nema að þið mynduð frekar vilja að einhver annar karakter í þáttaröðunum myndi leika í sínum sérþáttum…?

Það er spurning…
_________________________________________________