Ég hef aldrei beint pælt í þessu en um daginn þá kom vinkona mín og unnusti hennar í heimsókn, það var soldið og það barst einhvern veginn í tal. Allt í einu heyrist í henni “ég þoli ekki drasl”. Þá fór ég allt í einu að hugsa um að hún er svoldið lík Monicu. Það er aldrei drasl heima hjá henni og ef það kemur eitthvað smá drasl þá stekkur hún upp og tekur til. Það verður líka að vera allt í röð og reglu hjá henni, borga alla reikninga strax, má ekki rugla neinu og svoleiðis. Það er svo margt líkt með þeim að það er alveg ótrúlegt hehe :) Ég hef oft reynt að stríða henni á þessu en hún fattar ekki alltaf hvað ég er að tala um því að hún horfir eiginlega aldrei á friends. Svo það er oft heldur að ég sé eitthvað klikkuð hehe.