Hæhæ!

Ég og kærastinn minn erum búin að vera að leigja Friends á dvd síðustu mánuði, frá seríu 1 og við erum núna komin að 8. seríu :D Ég tók eftir því að það vantar 4 þætti í seríu 6 <– minnir mig. Það eru þættirnir sem systir hennar Rachel kemur og svo tveir næstu á eftir þeim. Voru þessir þættir svona misheppnaðir að það var bara sleppt því að setja þá með? Það eru frekar heiftarleg mistök ef þeir hafa gleymst? Ég var reyndar búin að hlakka til að sjá þættina sem systir hennar Rachel kemur fram í, svo ér svoldið súr.
Ég vildi líka bara koma því á framfæri að mér finnst Friends vera mesta snilld og það er endalaust hægt að hlægja að þessum þáttum :) Á eftir að sakna þeirra þegar þeir hætta! *sniff*