Má ég spurja í fullri alvöru hvað vandamálið við þig JohnnyB sé? Ég svaraði þarna grein á fullkomlega viðeigandi hátt og sagið eitthvað á þessa leið:

“hvað ætli það sé þá mikil vinna að búa til vandaðari þætti?”

þettta virðist hafa farið eitthvað í þig þar sem þú, friends aðdáandinn virðist ekki geta játað fyrir sjálfum þér að það eru til þættir sem fer meiri vinna í en þínir elskuðu friends þættir, það er til vandaðari þættir en friends og má þar nefna BBC þætti þar sem getur tekið meira en 5 ár að gera 12 þátta þáttaröð, þú svaraðir mér í umræddri grein með skætingi og dónaskap þótt ég á eingan hátt væri að lítisvirða þig eða þetta áhugamál. Vissulega eru friends þættirnir vandaðir og góðir en það eru eins og áður sagði til vandaðari þættir. Ég var aðeins að velta þeirri pælingu fram að þar sem það fer svona mikil vinna í þessa þætti hvernig ætli það sé þá með aðra þætti sem vissulega fer meiri vinna í.

Mér finnst þú þarna hafa gróflega misnotað admin réttindi þín með því að eyða einhverju sem var á eingan hátt vanvirðing við eitt eða neitt, má vel vera að þú hafir dregið fram þá merkingu í orðum mínum sem þér þóknaðist að sjá en ekki eru það nú vönduð vinnubrögð



Afrit af þessum korki hefur verið sent til vefstjóra þar sem mér beinlínis blöskrar stjórnun þín á þessu áhugamáli sem ég er nú í annað skipti að senda efni inná. Og má auk telja fullljóst að við núverandi aðstæður mun ekki ske mikið oftar.<br><br>,,Don't Make me come down there'' <i>-God</i