Ég ætla að byrja á því að segja það að þetta er ekki mín skoðun heldur staðreynd. Þannig að öll svör sem ganga út á það að benda á sorglegri þátt eru einfaldlega röng.

Sorglegasti þátturinn er 216: The One Where Joey Moves Out

Joey og Chandler eru allgjörlega toppurinn og í hver einasta skipti sem ég sé Joey labba út þá brest ég í grát (eða myndi gera það ef ég gæti, ég er eins og Chandler var). Ég veit að sjálfsögðu að mjög margir eru ósammála þessu og er þá helst hægt að nefna tvennt í fyrsta lagi þáttur 316: The One With The Morning After (Cool sama þáttanúmer einni seríu seinna aldrei tekið eftir þessu áður) og augljóslega það að Joey kemur aftur.
Þó að Joey komi aftur þá er Chandler núna fluttur út og þegar hann flutti út var því allgjörlega slegið upp í grín enda lauk Joey&Chandler tímabilinu þegar Chandler og Monica byrjuðu saman (þessvegna var Joey látinn komast að þessu fyrst, held ég) þannig að fyrir mér er þessi þáttur táknrænn fyrir lok þess tímabils sem þó kom ekki fyrr en nokkru seinna.
En þá á ennþá eftir að afgreiða 316 og er það gert á sama hátt og allir aðrir þættir eru afgreiddir.
þáttur 216 er eini þátturinn (fyrir utan einhverja lokaþætti) þar sem enginn lokabrandari er (þegar Creditið er) og ætti öllum að vera ljóst að þáttur 216 er án nokkurs vafa sorglegasti þátturinn hingað til. Ég hef þó lítinn efa um að lokaþátturinn muni velta honum af stallinum.

Grolsch

P.S. ég er búinn að sjá 4 fyrstu þættina í 9. seríu og er mjög ánægður.