Ég veit ekki um ykkur en ég hef tekið eftir því hvað David Schwimmer er mjög óvinsæll miðað við alla hina vinina. Ég fór inn á nbc.com að leita að myndum til að setja inn á huga og fann prýðismyndir af öllum vinunum nema Ross. Ég hef heldur ekki lesið eina einustu frétt um hann eða slúður nema að það snerti eitthvað um hann, Rachel (Jennifer Aniston), sambandið þeirra eða barnið. Mörgum finnst David Scwimmer líka vera væminn og leiðinlegur leikari en það finnst mér alls ekki. Hann er talinn mjög ómerkilegur af mörgum sem ég þekki en mér finnst hann alveg jafn merkilegur og allir hinir leikararnir. Bara eitthvað sem ég var að pæla, bæ!

P.S: Plís ekki byrja að bögga mig út af því hvað þetta sé leiðinleg og ómerkileg grein. Hún er heldur stutt en ég geri mitt bersta. Hún er líka fyrsta greinin mín. Gefiði mér bara athugasemdir en ekki vera að gefa skít í greinina. Takk, kveðja,

sweetbaby