Ég er frekar mikill Friends aðdáandi, en þetta er fyrsta greinin mín á þessu áhugamáli og ég ákvað að koma með smá pælingu.
Þið munið eftir því þegar Rachel var ólétt. Þá var mikið verið að pæla í því hver ætti að eiga barnið, og upp komu nokkrar hugmyndir, t.d. að Pabbi Chandlers ætti að eiga barnið. Það fannst mér persónulega alvegh fáronleg hugmynd, og greinilega fannst handritahöfundunum það líka. Og ég er alveg sáttur við að Ross hafi átt það, en hefði ekki verið geðveikt fyndið ef Gunter hefði átt það?
Raxhel hefði kannski orðið geðveikt full og vaknað svo upp í rúmi með Gunter, og orðið Ólétt af honum. Mér persónulega finnst það geðveikt fyndið, því gaurinn er svo mental í hana og hvað þá ef hann eignaðist barn með henni.

Spáið í þessu, kannski finst ykkur þetta slæm hugmynd, kannski ekki, en þetta vonandi vekur einhverja umræðu eða pælingar um hvað hefði getað gerst í þættinum.