Basicly (þýð-einfaldlega). Ég á fullt af áhugamálum. Og ég á vini sem eiga enn fleiri áhugamál. Vinir mínir eru vinir mínir vegna þess að þeir deila með mér áhugamálunum mínum. Stundum. Ekki alltaf. Og þegar þeir deila ekki með mér áhugamálunum þá so-be-it (þýð-þá það).

En eitt gera vinir mínir aldrei. Þeir dissa (þýð-angra, pirra, bögga (þýð-skipta sér af)) mig ekki yfir þeim áhugamálum sem ég hef og þeir fíla ekki. Og ég dissa (þýð-sjá þýðingu fyrir ofan) þá ekki.

Það eru margir sem eiga sjónvarpsþáttaröðina Friends (þýð-vinir) að áhugamáli. Ég er einn þeirra. Sem er bara gaman, það er gaman að eiga áhugamál. Ég ætla ekki að fara að dæma eða gagnrýna hversu heilsusamlegt eða heilbrigt þetta áhugamál er. Það er hægt að finna heilsusamlegra áhugamál. T.d. hjólreiðar eða skokk. En það er ekki umfjöllunarmálið á þessu áhugamáli. Heldur sjónvarpsþáttaröðin Friends (þýð-Vinir). Það er líka hægt að finna óheilsusamlegra áhugamál. T.d. óhóflega áfengisdrykkju. Það er heldur ekki umfjöllunarmál hér.

Ég held þessu áhugamáli mínu frá þeim sem ekki vilja eiga þetta að áhugamáli. Og ég bið þá sem skrifa pósta/korka hér á þessu áhugamáli að gera það líka. Ég hlusta ekki á Limp Biskit. Þeir eru ekki fyrir minn smekk. Og ég horfi heldur ekki á Everybody loves Raymond. Það er heldur ekki þáttur fyrir minn smekk. En ég skrifa ekki korka inn á þau áhugamál og tala niðrandi um þá sem hlusta/horfa. Ég bara sleppi því að hlusta/horfa. Og þú, kæri lesandi sem ekki finnst gaman að Friends (Þýð-Vinir), í guðsbænum sýndu okkur hinum þá kurteisi að láta það vera að fara með niðrandi mál í okkar garð. Gagnrýni er af hinu góða, ef hún er uppbyggileg og vel rökfærð. Því miður er það ekki svo í mörgum tilfellum hér á Huga.

Mín ábending…..ef þú getur skrifað gagnrýnin texta um áhugamálið okkar, sem innifelur ekki orðin sökkar (þýð-fúlt), boring (þýð-leiðinlegt) og asnar (þýð-þetta er íslenskt orð sem þarf ekki frekari þýðingar við) endilega gerðu það. Ef ekki, slepptu því þá og haltu þessu fyrir þig, og við skulum lofa að skrifa ekkert um Friends (þýð-Vinir) á Limp Biskit og Everybody loves Raymond áhugamálunum.