Þetta verðið þið að skoða!! Það er að segja ef þið viljið það!!!

Mér fannst mjög skemmtilegur seinasti þáttur!! Friends er með uppáhalds þáttunum mínum, en þar sem við erum ekki alltaf með stöð 2 þá hef ég ekki getað fylgst nógu vel með þáttunum!
Ég var akkúrat í miðjum þætti, áður en Monica & Chandler ákváðu að eignast barn :), að hugsa: \“Það er mjög asnalegt að Pheobe, sem er búin að eignast barn (meira börn) og Rachel sem er að fara eignast barn verði báðar mæður en ekki Monica sem hefur alltaf dreymt um að eignast barn og verða móðir…!\” Síðan eignast Monica auðvitað barn, eða hvað? Það væri alveg týpískt að hún og Chandler gætu ekki eignast barn og það yrði þvílíkt drama einn þátturinn og Monica lokar sig inní herbergi og allir reyna að tala við hana og hvaða, hvaða, hvaða! Við skulum bara vona ekki, ég þoli ekki svoleiðis þætti!!!
En mér fannst mjög skondið að Janice (hvernig sem það er nú skrifað) lendi með Rachel á stofu og þær þurfa að hanga saman! Næsti þáttur verður örugglega mjög fyndin, eða það ætla ég að vona! Ohh, ef ég væri einhver af vinunum væri ég löngu búin að drepa Janice! Ég skil ekkert í því afhverju enginn hefur gert það! En það yrði synd, því að Janice er svo skemmtilega óþolandi og það er gaman að fylgjast með því hvernig vinirnir reyna að þola hana!!!
P.S. Kíkið endilega á þessa Friends síðu: http://www.nbc.com/Friends/index.html