Ég er einn mesti F R I E N D S fan sem til er á jarðríki ég horfi á FRIENDS alltaf þegar mér gefst tækifæri til að horfa á þau í FRIENDS þá nýti ég það sko VEL!!!!!

Rachel er yndisleg og mér persónulega finnst hún vera geðveikt sæt og falleg og blíð og hún er bara nr.1, ég dýrka hana út af lífinu og ég myndi gera hvað sem er til að hitta hana þó að það væri ekki nema í 1 mínútu, ég á allar spólurnar og ég veit það bara greinilega að hún er BEST og ef þessi gaur með greinina “Rachel burt” er að mótmæla þessu og ef hann er virkilega svona mikil KARLREMBA þá geturu bara þagað!!!

Joey er líka alveg frábær karakter og ég dýrka hann líka útaf lífinu, svo mikið kvennagull og svo sætur og bara algjör… krúttí!!!!

Chandler er nákvæmlega það sama nema kannski ekki eins mikið kvennagull eins og Joey, ég verð bara að segja að ef hann væri ekki í þeim (þáttunum) þá væri þetta ekkert skemmtileg þáttaröð!!! Hann hefur frábæran húmor!!!

Ross er nákvæmlega það sama og Chandler en aðeins meira kvennagull hann kemur líka með góða punkta og sviðbrigði!!! Ég dýrka hann líka!!!!!

Monica er líka frábær eins og allir hinir og sérstaklega fyndið með það hvað hún þarf alltaf að hafa allt á hreinu með allt! Hún er líka rosa sæt og yndisleg, hún er ÆÐI!!!!

Phoebe er alveg yndisleg, fyndin, rugluð og algjör og hún sker sig smá út úr en það þarf líka og hún er ÆÐI og sæt og falleg!!

P.S þetta er bara mín skoðun en endilega komið með góða punkta ef þið viljið!!!! Bæjó!! Magga
ég dýrka F R I E N D S Magga