Góðan daginn.
Whist heiti ég og er hér kominn til að miðla tilfinningum mínum.

Þannig er mál með vexti að ég hef horft á friends seríurnar út í gegn örugglega oftar en mörg ykkar og vill fá að segja eftirfarandi.

Það er það að til að gera friends aðeins skemmtilegri þá finnst mér að það ætti að láta Jennifer fjúka. Þessi Rachel stelpa er svo alltof mikið að fara í taugarnar á mér og ég get ekki munað eftir einu atriði sem ég hef hlegið af með henni. Endilega komið með findin atriði svo ég geti skippt um skoðun.

Um tíma eiðilagði hún mitt mesta átrúnaðargoð í þáttunum, Ross, og núna er hún að byrja á því að eyðileggja Joey líka. Þetta finnst mér allt hræðilegt. Eins og núna í síðasta þætti þegar hann var að eiðileggja hundinn.. Fannst einhverjum það gaman?
Svo held ég að þetta myndi ekkert skána ef þau myndu byrja saman.

Rachel hefur líka eiðilagt næstum hvert einasta samband sem Ross hefur átt í þáttunum. Með Julie, Bonnie, Emily og nú Monu. Mismikið hve mikið það var hún en samt..

Neinei leiðréttið mig bara ef þetta er eitthvað bull!!
Undiskriftingur