Mér þykir það leiðinlegt að sjá hvað það koma lítið af greinum hér á þessu ágæta áhugamáli. Þar af leiðandi vil ég skella hér inn samantekt af öllum fróðleiksmolum sem ég hef fundið um Friends á netinu. Ég hef sent þetta inn áður en það er orðið talsvert langt síðan og kannski að nýbakaðir hugarar séu ekki búin að kíkja á þetta. Þetta er ekki gert í stigahóru hugleiðingum heldur eingöngu til að lífga upp á áhugamálið. Ég vona að fólk fari ekki að hrækja yfir mig ókvæðisorðum og fagni frekar þessari grein og fari að virkja Friends áhugamálið. Förum nú að drita inn greinum hérna!!!


1.David Schwimmer fór í Beverly Hills High skólann sem Beverly Hills 90210 eru byggðir á enda er hann nett snobbaður greyið.
2.Matthew Perry birtist einmitt í einum BH 90210 þætti snemma á ferlinum. Hann segist muna lítið eftir því og vill helst gleyma því
3.Schwimmer er sonur tveggja lögfræðinga í LA(karl og konu :)
4.Matthew Perry er mjög hrifinn af kvenkyns söngvurum eins og t.d. Shawn Colvin, The Indigo Girls og Tori Amos.
5.Courtney Cox hugsar mikið um tennurnar í sér og gerir allt til að hafa þær skjannahvítar.
6.David Schwimmer vill verða pabbi fljótlega, hann segir að það sé hlutverk allra, að eignast fjölskyldu og skapa gott umhverfi fyrir hana, hann var einu sinni með Natalie Imbruglia en hún hætti með honum af því að hann vildi ekki giftast henni.( öö hvað með fjölskylduna og allt það:)
7.Allir vinirnir hittast oft á sunnudagskvöldum til að spila Scrabble og drekka bjór.
8.Kvennamaðurinn Matt Le Blanc hefur verið með Minnie Driver, blakgellunni Gabrielle Reece,klámstjörnunni Jennu Jameson og leikkonunni Kate Hudson.
9.Jennifer Aniston ætlaði alltaf að vera listamaður(helst skúlptúristi), þegar hún var 11 ára málaði hún málverk sem var svo sýnt á Metropolitan listasafninu í New York( hef ekki hugmynd hvort þetta er bullshit eða ekki).
10.Jennifer Aniston hefur verið með Noah Wyle, Jonathan Silverman(leikari) og Matthew Perry og núna síðast Brad Pitt.
11.Schwimmer kvartaði yfir því að fá ekki að fíflast með apanum sem lék Marcel á milli atriða, vegna þess að þjálfarar apans vernduðu hann of mikið.(ææ greyið David)
12. Þeir sem hafa neitað að koma fram í Friends eru Jim Carrey,Eddie Murphy,Matthew Broderick,Roseanne, Dan Akroyd, Michelle Pfeiffer og John Cusack.
13.Framleiðendur þáttanna segja að vinirnir myndu ekki hafa efni á íbúðunum þeirra í alvörunni miðað við störf þeirra.
14. Í Friends töldu Joey og Chandler skrefin frá íbúð þeirra að kaffihúsinu og það var 97 skref. Í raun eru það vel yfir 100.000 skref þarna á milli, því stúdíóið fyrir kaffihúsið er á hinum enda LA. Þau þurfa að taka margar senur í einu á kaffihúsinu fyrir marga þætti.
15. Allir höfundarnir að Friends og framleiðendur hafa komið fram í feluhlutverkum.
16. Helen Baxendale, sem lék Emily í Friends, var ólétt á meðan hún lék í Friends. Þegar þau tóku upp í London var hún komin það langt á veg að þau urðu kvarða allar tökur af henni við öxl.
17.Faðir Jennifer Aniston heitir John Aniston og er leikari, hann lék einmitt í frægri sápuóperu sem kallaðist “Days of our lives”. Foreldrar Aniston skildu þegar hún var 9 ára.
18. Matt Le Blanc var blár og marinn í framan þegar hann kom í prufuna fyrir Friends, hann hafði dottið daginn áður vegna drykkju.
19. frændi Courtney Cox Arquette er Stuart Copeland úr hljómsveitinni Police.
20. Matt Le Blanc var einu sinni með klámstjörnunni Jennu Jameson
21. Faðir Lisu Kudrow er hausverkja sérfræðingur
22. David Schwimmer var að eigin sögn “feitur nörd” á skólaárum.
23. Courtney Cox Arquette lék kærustu Michael J Fox í Family Ties þáttunum vinsælu.
24. Matthew Perry skoðaði 40 hús áður en hann keypti setrið sitt sem er í laginu eins og W í LA. OK
25. Aniston keypti Bronco jeppa handa bróður sínum í jólagjöf og hann grét þegar hann sá jeppann.
26. Christina Pickles sem leikur mömmu hennar Monicu lék með Courtney í Masters of the Universe.
27. David Schwimmer er með samning upp á margar millur við Miramax um að leika og leikstýra nokkrum myndum.
28. Afi Perry´s og “vinir” hans dýrka þáttinn.
29. Perry heldur því fram að Margareth Thatcher sé mikill Friends aðdáandi og að hún elski öll atriði með Chandler og Joey.
30. Matt Le Blanc hitti pabba sinn fyrst þegar hann var 8 ára, hann var í Víetnam.
31. Faðir Perry´s kom fram í TOW Rachels new dress.
32. Perry feðgarnir léku báðir einnig í Fools Rush In.
33. Ramminn í hurðinni hjá Monicu var spegill en einn af myndatökumönnunum braut hann og það var ákveðið að halda rammanum og hafa hann utan um gægjugatið í staðinn.
34. Þegar Ursula kemur fram í þáttunum þá kemur systir Kudrow til að taka axlartökurnar með henni.
35. Upphafssenan í hverjum þætti þar sem þau dansa í gosbrunni var tekin upp kl.5 um nótt svo enginn væri á ferli í kring.
36.Sófinn sem vinirnir sitja alltaf í á kaffihúsinu fannst í rusli en var bólstraður upp og lagaður( af hverju veit ég ekki).
37.Apinn Marcel var fyrsti “leikarinn” úr Friends sem lék í stórri mynd, hann var apinn í Outbreak
38.Þegar þátturinn var samþykktur eftir “pilotinn”, buðu NBC öllum leikurunum frítt til Las Vegas, en seinna var þessi hugmynd notuð í þáttunum þegar vinirnir fóru saman til Las Vegas.
39. Sófarnir tveir sem voru inni hjá Chandler og Joey voru fyrst svartir en þeim var svo skipt fyrir brúna stóla út af einhverju veseni með lýsinguna.
40.Matthew Perry segir svo marga brandara að þeir ákveða oft að setja suma í þáttinn.
41.Allir leikararnir safnast saman í hrúgu og óska hvor öðru góðu gengi fyrir hvern þátt.
42.Jennifer Aniston heitir í raun Anistropolus og var eitt sinn svo feit að umboðsmaður hennar fékk hana til að fara í megrun svo hún gæti fengið einhverja vinnu sem leikkona.
43.David Schwimmer var einu sinni með Natalie Imbruglia.
44.Leikararnir hittast oft og spila póker fram á nótt, Le Blanc og Aniston voru víst einu sinni saman.
45.Courtney Cox átti að leika Rachel, David Schwimmer leist ekkert á Matt LeBlanc þegar hann sá hann fyrst og hataði hann við fyrstu sýn.
46.Matt LeBlanc er mótorfíkill og hefur tekið þátt í mörgum mótum. Hann klessti eitt sinn bíl sínum á Jason Priestley(hahahah)í móti.
47.Matt Leblanc var nánast gjaldþrota þegar hann fékk hlutverk Joeys.
48.Jennifer Aniston og Matthew Perry voru lengi saman.
49.Jay Leno bað Jennifer Aniston einu sinni að snerta nefið á sér með tungunni hennar( hún sagði kurteisislega NEI).
50.Lisa Kudrow og Conan O´Brien voru eitt sinn par.
51.Matt LeBlanc vann á hamborgarastað og hrækti oft í borgarana.

-cactuz