Sérþáttur um Joey????? Breska dagblaðið sagði frá því á dögunum að NBC sé að íhuga möguleika á sérþætti bara um karakterinn hans Matt LeBlanc, Joey. Þetta á auðvitað að gerast þegar Friends þættirnir hætta(ef þeir hætta). Ekki fylgir sögunni hvort Matt mun leika Joey áfram í þessum þáttum.

Persónulega finnst mér enginn Joey vera án Matt LeBlanc og ef hann samþykkir ekki að taka þátt í þessu þá er þetta dauðadæmt frá upphafi til enda. Það hefur komið áður hér upp umræða um það hvort Friends yrði jafnskemmtilegt ef einhver myndi hætta og það voru skiptar skoðanir um það. Það er hinsvegar allt annað mál að fara að ímynda sér þátt þar sem bara einn af karakterunum tekur þátt. Ég held að þetta sé vitleysa hjá NBC og þetta myndi aldrei ganga upp svona jafnvel þótt það sé Joey sem ég dýrka. Hver karakter í Friends þáttunum þarf á öllum hinum að halda og þeir mynda eina sterka heild sem á ekkert að fikta í.
Hvernig annars ætla þeir að fara að þessu. Joey hösslar eina stelpu í hverjum þætti og finnur alltaf nýja afsökun fyrir því að segja þeim upp. Joey borðar pitsu og samlokur og horfir EINN á Baywatch. Joey fer í eina leiklistarprufu í hverjum þætti og sefur svo hjá mótleikkonu sinni. Nei þetta myndi ekki ganga upp, frekar ættu NBC-menn að einbeita sér að því að halda í Friends eins lengi og þeir geta og svo bara move on

Hvað finnst ykkur?

-cactuz